GPS staðsetning hreindýra
Landsvirkjun styður nýstárlegar hreindýrarannsóknir Náttúrustofu Austurlands. Með GPS tækni er fylgst með hreyfingum hreindýra.
Þann 2. apríl sl. undirritaði Landsvirkjun samning við Náttúrustofu Austurlands um stuðning við nýtt verkefni i hreindýrarannsóknum.
Með því að hengja GPS-staðsetningartæki á nokkur dýr er að hægt að fylgjast með þeim frá degi til dags. Ávinningur og viðbót við núverandi rannsóknir eru t.d. upplýsingar um samgang á milli hjarða sem að jafnaði halda sig á mismunandi svæðum, þ.e. í Álftafirði og nágrenni og við Snæfell.
Með þessari tækni munu dýrin vísa á þau svæði sem mest eru nýtt til beitar, þannig að betur megi gera sér grein fyrir beitarálagi. Tækin munu ljósta upp um flakk dýranna, þ.e. hversu miklum tíma þau verja til ferða og hvíldar, sem er t.d. innlegg í þekkingu á orkubúskap þeirra. Tækin verða í gangi allt árið í u.þ.b. tvö og hálft ár, þannig að einnig munu fást upplýsingar um hegðun þeirra að vetrinum og þá m.a. hugsanlegan ágang þeirra á lönd bænda.
Samkvæmt skilyrðum fyrir leyfi til að reisa og reka Kárahnjúkavirkjun hafa Landsvirkjun og Náttúrustofu Austurlands verið að móta vöktunaráætlun til að fylgjast með áhrifum á hreindýrastofninn. Verkefnin eiga að vera til viðbótar við hefðbundna vöktun, og hafa fyrst og fremst beinst að burði og burðarsvæðum og auknu beitarálagi á sumarbeitarsvæðum Snæfellshjarðar.
Á vef Náttúrustofu Austurlands er nánar greint frá vöktun hreindýra.

Frá undirritun samningsins við Náttúrustofu Austurlands. Á myndinni eru í aftari röð frá vinstri: Óli Grétar Blöndal Sveinsson, forstöðumaður rannsókna hjá LV Power, Hákon Aðalsteinsson, sérfræðingur hjá LV Power og Skarphéðinn Þórisson, hreindýrasérfræðingur á Náttúrustofu Austurlands. Í fremri röð frá vinstri eru Jón Ágúst Jónsson, forstöðumaður Náttúrustofu Austurlands, Einar Mathiesen, framkvæmdastjóri orkusviðs Landsvirkjunar og Georg Pálsson, stöðvarstjóri Fljótsdalsstöðvar.
