Fréttasafn
Nýr stöðvarstjóri á Mývatnssvæði
Steinn Ágúst Steinsson hefur verið ráðinn stöðvarstjóri á Mývatnssvæði með starfsstöð í Kröflu.
Steinn útskrifaðist sem rafmagnsverkfræðingur frá háskólanum í Óðinsvéum 1984 og með M.Sc. gráðu frá háskólanum í Álaborg 1986. Hann hefur starfað í orkugeiranum í 20 ár fyrst í Danmörku og nú síðustu 2 árin hjá Enex.
Í byrjun er gert ráð fyrir að Steinn starfi á Háaleitisbraut 68 en taki síðan við sem stöðvarstjóri í júlímánuði. Landsvirkjun býður Stein Ágúst velkominn til starfa.
