Starfsmenn Landsvirkjunar og LV Power kenna á sumarnámskeiði við Háskóla Íslands
Námskeiðið sem stendur yfir þessa dagana nefnist "Orka, umhverfi og nytjar" og stendur nemendum Háskóla Íslands til boða.
Á þriðja tug nemenda sækir námskeiðið þessa dagana. Efni námskeiðsins nýtist nemendum í verkfræði og öðrum áhugasömum um orku- og umhverfismál.
Námskeiðið gefur almennt yfirlit um stöðu orkumála í heiminum og orkumál á Íslandi í því samhengi. Staða vatnsafls og jarðhita verður kynnt sérstaklega. Þá er fjallað um notkun raforku á almennum markaði og til stóriðju á Íslandi.
Farið verður yfir samspil umhverfis og orkunytja, undirbúning og uppbyggingu vatnsaflsvirkjana og jarðgufuvirkjana og helstu atriði er varða vélar, rafbúnað og rekstur raforkukerfisins. Nemendur vinna verkefni samhliða kennslunni.
Sigurður Magnús Garðarsson, deildarforseti í umhverfis- og byggingarverkfræði ber faglega ábyrgð á námskeiðinu en starfsmenn Landsvirkjunar og Landsvirkjunar Power leggja fram kennslukenna, Háskóla Íslands að kostnaðarlausu. Kennarar í námskeiðinu eru sérfræðingar fyrirtækjanna sem búa yfir þekkingu og reynslu í þessum efnum og hafa komið að kennslu í Háskóla Íslands og á öðrum vettvangi.
Hugmyndin og frumkvæðið að námskeiðinu kemur frá Landsvirkjun og Landsvirkjun Power sem hafa boðist til að halda námskeiðið Háskóla Íslands að kostnaðarlausu til að auka möguleika stúdenta á sumarnámi.
Með þessu framtaki vilja Landsvirkjun og Landsvirkjun Power leggja sitt af mörkum til samfélagsins við þær aðstæður sem nú eru uppi og hvetja jafnframt önnur fyrirtæki og stofnanir, sem sjá sér það fært, að bjóða fram krafta sína með þessum hætti í samstarfi við háskólana í landinu.
