Hækkun á heildsölugjaldskrá rafmagns frá Landsvirkjun
Þann 1. júlí næstkomandi hækkar heildsöluverð raforku frá Landsvirkjun um 7,5%.
Þann 1. júlí næstkomandi hækkar heildsöluverð raforku frá Landsvirkjun um 7,5%.
Þessi hækkun byggist á því að í langtímasamningum um sölu á rafmagni og svonefndum grunnorkusamningum eru ákvæði um að verð geti tekið breytingum til samræmis við hækkandi verðlag.
Landsvirkjun hefur ekki nýtt þessar heimildir að fullu og raunverð rafmagns hefur farið lækkandi undanfarin ár. Það gerir það áfram þrátt fyrir hækkunina nú. Þetta sést af því að skv. upplýsingum Hagstofu Íslands nemur hækkun vísitölu neysluverðs frá apríl 2008 til apríl 2009 11,9% en hækkunin nú er 7,5% eins og áður segir.
Meðalverð raforku í heildsölu frá Landsvirkjun á árinu 2008 nam tæplega 3,4 kr./kWst. Raforkuverð á Íslandi til heimila er með því lægsta á Vesturlöndum. Þetta má sjá m.a. á vef Samorku þar sem fram kemur að rafmagn til heimila á Íslandi er ódýrast á Norðulöndum.

miðað við vísitölu neysluverðs á síðustu árum.
