Standard & Poor's lækkar lánshæfiseinkunn Landsvirkjunar
Matsfyrirtækið Standard & Poor's hefur breytt aðferðafræði varðandi mat á lánshæfi fyrirtækja í eigu opinberra aðila (“Government Related Corporates”).
Afleiðingin er sú að lánshæfiseinkunn Landsvirkjunar vegna erlendra skuldbindinga lækkar úr BBB-(athugunarlisti) í BB (stöðugar horfur). Lánshæfi á innlendum skuldbindingum lækkar úr BBB+ (neikvæðar horfur) í BBB- (neikvæðar horfur).
Hin breytta aðferðafræði hefur í för með sér alþjóðlega að Standard & Poor's lækkaði í dag lánshæfi á tveimur fyrirtækjum í opinberri eigu, hækkaði lánshæfi á fimm og setti tíu fyrirtæki á athugunarlista.
Landsvirkjun fékk fyrst lánshæfiseinkunn árið 1998 og er þetta í fyrsta sinn sem fyrirtækið fær einkunn sem er lægri en sambærileg einkunn ríkissjóðs. Ílánssamningum Landsvirkjunar eru engin ákvæði sem kalla á uppsögn eða breytingar þó að lánshæfi lækki.
Breytingin nú hefur því engin áhrif á vaxtakjör á eldri lánum fyrirtækisins. Breytingin hefur hins vegar, að öllu öðru óbreyttu, neikvæð áhrif á aðgengi Landsvirkjunar að nýju lánsfjármagni á ásættanlegum kjörum.
