Rannsóknaboranir í Gjástykki, Þingeyjarsveit
Landsvirkjun fyrirhugar boranir allt að þriggja rannsóknaborhola á einum borteig í Gjástykki í Þingeyjarsveit.
Áform um boranir á þessu svæði eru liður í samstarfi Landsvirkjunar og Þeistareykja ehf. um rannsóknir og könnun á virkjunarmöguleikum háhitasvæða á Norðausturlandi, það er á Þeistareykjum, í Kröflu, Bjarnarflagi og Gjástykki.
Jarðhitakerfið í Gjástykki er talið ná yfir um 10 km2 svæði. Til að fá úr því skorið hvort um nýtanlegan jarðhita til vinnslu sé að ræða þarf að bora rannsóknaholur og afla með því nauðsynlegra gagna um eðli jarðhitans í Gjástykki. Samkvæmt stefnu viðkomandi sveitarfélaga verður Gjástykki aftast í framkvæmdaröð jarðhitavirkjana í Þingeyjarsýslum. Í fyrstu verður lögð áhersla á rannsóknir þar, þar með taldar rannsóknaboranir.
Í frummatsskýrslu er fjallað um umhverfisáhrif fyrirhugaðra rannsóknaborana. Frummatsskýrslan er í athugun hjá Skipulagsstofnun. Allir hafa rétt til að kynna sér frummatsskýrsluna og leggja fram athugasemdir. Athugasemdir við frummatsskýrsluna skal senda til Skipulagsstofnunar.
Frestur til að gera athugasemdir er til 28. ágúst 2009.
Frummatsskýrsla vegna rannsóknaborana í Gjástykki
Eldri skýrslur:
Tillaga að matsáætlun vegna rannsóknaborana í Gjástykki
