Fréttasafn

Fyrsti laxinn úr Jökuldalnum

12.8.2009

Í fyrradag veiddist fyrsti laxinn í Jökuldalnum. Frá þessu segir á vef veiðiþjónustunnar Strengir.

Þar segir einnig að hingað til hafi verið óvissa hvort fiskgegnd sé upp Jöklu og upp dalinn vegna erfiðra fossa og flúða á leiðinni. Einnig var hindrun talin vera við steinboga sem er ekki langt fyrir ofan þjóðvegsbrúna á Jöklu. Þar hafa safnast saman laxar og hafa veiðst nokkrir en nú er ljóst að hann kemst ofar þegar vatn eykst í ánni vegna rigninga,

Í fyrradag veiddist fyrsti laxinn fyrir ofan steinbogann, í hliðará sem heitir Hnefilsdalsá. Þar var á ferð Árni Jóhannesson sem var ásamt félögum í „Mokveiðifélaginu“ að veiðum dagana á undan á neðri svæðum Jöklu og í þveránum í Jökulsárhlíð, Laxá, Fossá, Kaldá og Fögruhlíðará. Veiddu þeir frábærlega vel þar og fengu 17 laxa á tæpum tveim dögum á tvær stangir! (sjá á www.veidimenn.com)

Það var tengdafaðir Árna, Jón Hallgrímsson bóndi á Mælivöllum við Hnefilsdalsá sem sá fisk við brúna hjá bænum og kallaði í Árna sem náði honum á litla Sunray Shadow túpu. Kom þá í ljós að þetta var smálax og eftir myndatöku var honum sleppt aftur í hylinn sem hefur verið skírður þar með Jónshylur.

Hér með er staðfest að göngufiskur kemst upp allan Jökuldalinn. Hugsanlega er um náttúrulegt klak að ræða því ekki var sleppt seiðum í Hnefilsdalsá í fyrra og er laxinn því væntanlega af náttúrulegum uppruna árinnar.

  Fyrsti Laxinn úr Jökuldalnum 

Fyrsti laxinn sem veddist í Jökuldalnum

Senda grein

Skoða fréttir eftir árum


Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica