Fréttasafn

Stýring á rennsli í Jökulsá í Fljótsdal

25.8.2009

Af gefnu tilefni er ástæða til að benda á að Landsvirkjun hefur í hvívetna farið eftir þeim reglum sem gilda um stýringu á rennsli vatns um Jökulsá í Fljótsdal frá Hraunaveitu en sú stýring hefur áhrif á vatnsmagn í fossum í ánni.

Þær reglur sem um þetta gilda koma fram í úrskurði umhverfisráðherra þar sem bygging Kárahnjúkavirkjunar var heimiluð. Eitt skilyrði fyrir heimildinni hljóðar svo:

„Framkvæmdaraðili nýti yfirfallsvatn á skipulegan hátt á ferðamannatíma og leitist við að ná meðalrennsli í farveg Jökulsár í Fljótsdal og Kelduár í júlí og ágúst í góðum vatnsárum. Í lakari vatnsárum skal framkvæmdaraðili leggja áherslu á að hafa rennsli á ferðamannatíma í farvegi Jökulsár í Fljótsdal og síðan í Kelduá eftir því sem yfirfallsvatn dugar til.“

(sjá: http://www.karahnjukar.is/files/2002_9_27_urskurdur_ur_heild.pdf) Það er því ekkert óeðlilegt við það að lítið vatn hafi verið í ánni í sumar sökum lélegs rennslis sem veldur því að ekki hefur verið neitt vatn á yfirfalli úr Hálslóni.

Landsvirkjun hafnar því sem fram kemur, m.a. í umfjöllun Ríkisútvarpsins, að fyrirtækið hafi gefið misvísandi yfirlýsingar um stýringu á vatnsrennsli um fossa í Jökulsá í Fljótsdal. Við eftirgrennslan vísar Ríkisútvarpið á handrit af gamalli frétt í Stöð 2 þar sem er frásögn fréttamanns en hvorki vitnað beint í né rætt við neinn hjá Landsvirkjun. Frásögn þriðja aðila er harla veikur grunnur undir ásökun um óheilindi eins og þau að standa ekki við gefnar yfirlýsingar. Vilji menn fara í rannsóknarblaðamennsku með því að grufla í þriggja ára gömlum fréttaflutningi annarra miðla ætti að vera hægur vandi að fletta upp á hvaða reglur gilda um vatnsveitu til fossanna sem um ræðir. Það liggur fyrir að Landsvirkjun hefur farið eftir þeim reglum í hvívetna og aldrei gefið neitt annað til kynna.

Senda grein


Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica