Viðgerðir á Kvíslaveitu
Gísli Már Gíslason, formaður Þjórsárveranefndar, hefur snúið sér til sveitarstjórna, umhverfisstofnunar og umhverfisráðuneytis með áhyggjur af meintum framkvæmdum Landsvirkjunar á svæði í Þjórsá ofan verndarsvæðis Þjórsárvera og telur að fyrirtækið hafi veitt vatni inn í Kvíslaveitu í heimildarleysi. Áhyggjur Gísla eru ástæðulausar og ásakanir um ólöglegar aðgerðir rangar. Þetta er illskiljanlegt þar sem Gísli ætti að vera vel staðkunnugur og ber að þekkja eðli og umfang framkvæmda Landsvirkjunar á svæðinu.
Framkvæmdum við svonefndan 5. áfanga Kvíslaveitu lauk árið 1997 (mynd 1), en þá var austustu kvísl Þjórsár, skammt neðan ármóta Austurkvíslar og Háumýrarkvíslar, veitt um Þjórsárlón og Kvíslaveitu til Þórisvatns. Engar vatnaveitur hafa síðan átt sér stað á vegum Landsvirkjunar á þessu svæði og ekki hefur verið snert við kvíslum sem á sínum tíma tengdust áformuðum 6. áfanga Kvíslaveitu sem ekki varð af (mynd 2).
Vestan við Þjórsárlónið eru þrjú grjótyfirföll (mynd 1 og mynd 3) sem vatn rennur yfir í miklum flóðum. Flest ár er ekki vatn á yfirföllunum en fyrir nokkrum árum urðu mikil flóð í Þjórsá og flóðvatnið olli töluverðu rofi á kafla í farveginum neðan yfirfallanna (mynd 4). Sumarið 2008 var því ákveðið að hefta rofið og styrkja yfirföllin og flóðfarveg (mynd 5). Landsvirkjun hafði samráð við sveitarstjóra Skeiða- og Gnúpverjahrepps um framkvæmdina, en hún er utan friðlands Þjórsárvera. Þess var vandlega gætt að skemma ekki gróður á svæðinu og nota gamlar slóðir og þar sem þurfti að leggja nýja slóð frá eldri að rofsvæði var farið um ógróið land.
Myndir þær sem hér fylgja segja meira en mörg orð. Vonast Landsvirkjun til að hér með sé mál þetta upplýst og misskilningur Gísla Más Gíslasonar leiðréttur. Þá harmar fyrirtækið að Gísli skuli ekki hafa snúið sér til Landsvirkjunar eða fulltrúa fyrirtækisins í Þjórsárveranefnd sem Gísli veitir forystu til að afla réttra upplýsinga.
Myndir sem vísað er til:
Mynd 1: Kvíslaveita 5 - Yfirlitsmynd
Mynd 2: Kvíslaveita - 6. áfangi
Mynd 3: Þjórsárlón með Hofsjökul í bakgrunni
Mynd 4: Dæmi um rof í árfarvegi við stæði rofvars
Mynd 5: Fullfrágengið rofvar
