Samorka gerir athugasemdir við skýrslu um arðsemi orkusölu
Á vef Samorku kemur fram að ágæt arðsemi sé af orkusölu hér á landi öfugt við það sem kemur fram í nýlegri áfangaskýrslu Sjónarrandar.
Samorka setur fram þessar athugasemdir í kjölfar áfangaskýrslu sem fyrirtækið Sjónarrönd vann fyrir fjármálaráðuneytið. Í athugasemdum Samorku segir að í áfangaskýrslu Sjónarrandar sé notast við rangar tölur, mismunandi uppgjörsaðferðum blandað saman, ólík tímabil borin saman, rangar ályktanir dregnar, gjörólík fyrirtæki borin saman sem væru þau sambærileg og almennt séð óhemju langt seilst í leit að einhverjum neikvæðum hliðum á orkusölu til stóriðju. Samorka vonar að betur verði vandað til verka við endanlegan frágang skýrslunnar.
