Heimsókn í Laxárstöðvar
Vinsamlega athugið að Laxárstöð er lokuð sumarið 2011 vegna viðhaldsframkvæmda.
Sýningin Hvað er með Ásum? hefur vakið verðskuldaða athygli gesta Laxárstöðva síðastliðin ár. Þar eru sýnd verk Hallsteins Sigurðssonar, myndhöggvara, sem eiga fyrirmyndir sínar í norrænu goðunum. Styttum Hallsteins af goðunum er komið fyrir í göngum og hvelfingum Laxárstöðvar. Texti við verkin er saminn af Árna Björnssyni, þjóðháttafræðingi.
Bóka þarf heimsóknir fyrirfram annað hvort á þessu eyðublaði eða í síma 515 9000.
Nánari upplýsingar um Laxárstöðvar >>
Hvernig kemst ég á staðinn?
Af þjóðvegi 1 austan megin við Fljótsheiði (við kirkjustaðinn Einarsstaði) er beygt inn á þjóðveg 845 í átt til Húsavíkur. Af honum er beygt inn á þjóðveg 854 sem liggur fram hjá byggðasafninu á Grenjaðarstað, beint að Laxárstöðvum.
Útivist og ferðamennska
Áhugavert er að fá sér gönguferð um Laxárgljúfur og njóta fegurðar og fjölskrúðugs fuglalífs. Laxárstöðvar eru vel í sveit settar. Um hálftíma akstur er til Húsavíkur. Um 40 mínútna akstur er í Mývatnssveit og um klukkutíma akstur er til Akureyrar.
Í nágrenni Laxárstöðva margvísleg ferðaþjónusta og möguleikar til útivistar.
- Byggðasafn Suður-Þingeyinga á Grenjaðarstað er aðeins í 2 km fjarlægð frá Laxárstöðvum.
- Samgönguminjasafnið á Ystafelli í Köldukinn er einnig áhugaverður staður til að heimsækja.
