
Búrfellsstöð – Gagnvirk orkusýning
Um allan heim fer eftirspurn eftir endurnýjanlegum orkugjöfum vaxandi. Gagnvirka orkusýningin í Búrfellsstöð varpar ljósi á endurnýjanlega orkugjafa, tækifæri þeim tengdum, takmarkanir og sögu nýtingar þeirra á Íslandi.
Sýningin miðar að því að veita landsmönnum og erlendum gestum innsýn í orkuvinnslu og orkunotkun endurnýjanlegra orkugjafa og velta fyrir sér hvernig framtíðin líti út með tilliti til nýtingar vatnsafls, jarðvarma, vindorku og sjávarfalla. Markmið hennar er að fræða og skemmta á lifandi hátt en um leið að miðla þekkingu um ólíka orkugjafa og áhrifa þeirra á samfélag, efnahag og umhverfi.
Búrfellsstöð er opin alla daga vikunnar 10:00 - 18:00 frá 1. júní.
Végarður – Gestastofa Fljótsdalsstöðvar og leiðsögn við Hálslón
Gesta- og kynningarstofa Fljótsdalsstöðvar er í Végarði í Fljótsdal. Þar fá gestir kynningu á Kárahnjúkaframkvæmdinni og kynnast raforkuvinnslu í Fljótsdalsstöð.
Boðið er upp á skipulagðar skoðunarferðir frá Végarði inn í stöðvarhús Fljótsdalsstöðvar milli kl. 13:30 og 15:30 alla daga frá 10. júní til 10. ágúst, hámark er átta gestir í ferð. Stærri hópa þarf að bóka með fyrirvara hjá vegardur hjá lv.is eða í síma 470 2570.
Leiðsögn við Kárahnjúkastíflu og Hálslón verður í boði á miðvikudögum og laugardögum milli kl. 14:00 og 17:00 frá 11. júní til 20. ágúst. Mæting er á bílastæðið hjá listaverkinu Hringiðu við Kárahnjúkastíflu og leiðsögumaður segir á lifandi hátt frá svæðinu, framkvæmdinni og sambýli manns og náttúru á hálendinu.
Végarður er opinn alla daga frá klukkan 10:00 til 17:00 frá 1. júní til 31. ágúst.
Kröflustöð er stærsta jarðvarmavirkjun Landsvirkjunar og er áhugaverður viðkomustaður fyrir ferðamenn. Í Kröflustöð geta gestir kynnt sér raforkuvinnslu með jarðvarma og kynnst merkilegri sögu uppbyggingar á Kröflusvæðinu, þar sem eldgos og beislun orkunnar fóru fram á sama tíma.
Í nágrenni Kröflustöðvar eru margar áhugaverðar gönguleiðir sem hægt er að fá nánari upplýsingar um í gestastofunni.
Gestastofan í Kröflustöð er opin alla daga vikunnar 15. júní til 30. ágúst 10:00 - 16:00.
Vinsamlega athugið að Laxárstöð er lokuð sumarið 2011 vegna viðhaldsframkvæmda.
Í Laxárstöð III geta hópar komið í heimsókn og fengið leiðsögn um stöðina.
Bóka þarf heimsóknir fyrirfram annað hvort á þessu eyðublaði á vefnum, í síma 515 9000 eða í síma 464 8260.
Í Blöndustöð geta hópar komið í heimsókn og fengið leiðsögn um stöðina.
Bóka þarf heimsóknir fyrirfram annað hvort á þessu eyðublaði á vefnum, í síma 515 9000 eða í síma 455 6700.
Í Írafosstöð geta hópar komið í heimsókn og fengið leiðsögn um stöðina.
Bóka þarf heimsóknir fyrirfram annað hvort á þessu eyðublaði á vefnum, í síma 515 9000 eða í síma 480 2600.
