Heimsókn í Blöndustöð

Í Blöndustöð er sýningin Dimmir hratt á draugaslóð með verkum eftir Baska (Bjarna Skúla Ketilsson).

Dimmir hratt á draugaslóð - VörðurBaski er fæddur á Akranesi árið 1966 og stundaði meðal annars nám í leikhúshönnun í Noregi og útskrifaðist 1988. Baski vann á Íslandi við ýmis störf í millitíðinni en seinna lá leiðin til Hollands til frekara listnáms þar sem hann útskrifaðist 1998 með BA-próf í listmálun og fagurfræði úr Aki Akademie voor beldende kunst Enschede.

Baski hefur haldið einkasýningar víðs vegar um Evrópu og hlotið ýmsar viðurkenningar Hægt er að sjá ýmis verk Baska á heimasíðu hans www.baski.nl

Sýningarskrá: Dimmir hratt á draugaslóð

Bóka þarf heimsóknir í stöðina. Það má gera með því að fylla út þetta eyðublað.

Nánari upplýsingar um Blöndustöð >>

Staðsetning BlöndustöðvarHvernig kemst ég á staðinn?
Af þjóðvegi 1 í Langadal sunnan og austan Blönduóss er beygt inn í Blöndudal, þjóðveg 731 og yfir Blöndu sem leið liggur inn á Kjöl eftir þjóðvegi 732. Ef ekið er norður Kjöl er Blöndustöð fyrsta húsið sem komið er að í byggð.

Útivist og ferðamennska
Í Húnavatnssýslum eru margar áhugaverðar gönguleiðir sem vert er að kynna sér. Tilvalið er að aka hring um Vatnsdal og staldra við í Þórdísarlundi auk þess sem skoða má Þingeyrarkirkju. Þá er góð veiði í hinum fjölmörgu ám og vötnum svæðisins.

Í nágrenni Blöndustöðvar eru fjöllmargir áhugaverðir viðkomustaðir. Nefna má


Útlit síðu: