Búfellsstöð – Gagnvirk orkusýning
Um allan heim fer eftirspurn eftir endurnýjanlegum orkugjöfum vaxandi. Gagnvirka orkusýningin í Búrfellsstöð varpar ljósi á endurnýjanlega orkugjafa, tækifæri þeim tengdum, takmarkanir og sögu nýtingar þeirra á Íslandi.
Sýningin miðar að því að veita landsmönnum og erlendum gestum innsýn í orkuvinnslu og orkunotkun endurnýjanlegra orkugjafa og velta fyrir sér hvernig framtíðin líti út með tilliti til nýtingar vatnsafls, jarðvarma, vindorku og sjávarfalla. Markmið hennar er að fræða og skemmta á lifandi hátt en um leið að miðla þekkingu um ólíka orkugjafa og áhrifa þeirra á samfélag, efnahag og umhverfi.
Sýningin er opin frá 12. júní til 31. ágúst kl. 10:00 til 18:00.
Hvernig kemst ég á staðinn?
Tvær leiðir liggja að stöðvunum í Þjórsá og Tungnaá. Úr norðri er ekið yfir Sprengisand og úr suðri gegnum uppsveitir Árnessýslu. Af þjóðvegi 1, austan Selfoss, er beygt inn á þjóðveg 30 í átt að Flúðum. Af þeim vegi er beygt inn á þjóðveg 32, Árnes, sem liggur inn í Þjórsárdal og þaðan inn á Sprengisand og þar með fram hjá öllum virkjunum á Þjórsár- og Tungnaársvæðinu.
Útivist og ferðamennska
Í nágrenni Búrfellsstöðvar má finna fjölbreytta ferðaþjónustu. Starfsfólk Landsvirkjunar vinnur í samvinnu við heimamenn að því að gera Þjórsárdal að áhugverðum áningarstað fyrir ferðamenn.
