Kröflustöð - Stærsta jarðvarmavirkjun Landsvirkjunar

Kröflustöð er stærsta jarðvarmavirkjun Landsvirkjunar og er áhugaverður viðkomustaður fyrir ferðamenn. Í Kröflustöð geta gestir kynnt sér raforkuvinnslu með jarðvarma og kynnst merkilegri sögu uppbyggingar á Kröflusvæðinu, þar sem eldgos og beislun orkunnar fóru fram á sama tíma.

Í nágrenni Kröflustöðvar eru margar áhugaverðar gönguleiðir sem hægt er að fá nánari upplýsingar um í gestastofunni.

Gestastofan í Kröflustöð er opin alla daga vikunnar 10:00 –16:00

Hvernig kemst ég á staðinn?
Kort af staðsetningu KröflustöðvarTil að komast að Kröflustöð er beygt til norðurs af þjóðvegi 1. Kröfluafleggjari er nr. 863 og liggur af þjóðvegi 1 rétt austan undir Námafjalli við Mývatn. Staðsetning Kröflustöðvar gerir það að verkum að hún er kjörinn áningarstaður ferðamanna.

Stöðin var frá upphafi á hvers manns vörum og olli bygging hennar verulegum deilum í þjóðfélaginu öllu. Þá var um tíma tvísýnt um hvort stöðin kæmist nokkru sinni í rekstur þar sem mikil eldsumbrot hófust í aðeins 2 km fjarlægð frá stöðinni og ógnuðu verulega tilveru hennar. Menn héldu þó ótrauðir áfram framkvæmdum og hóf stöðin rekstur í ársbyrjun árið 1977. Landsvirkjun keypti stöðina af ríkinu 1986.

Útivist og ferðamennska
Rétt ofan stöðvarinnar er vinsælt göngusvæði en þar er gengið um svæðið við Leirhnjúk og sprengigíginn Víti sem vinsælt er að skoða.Við Mývatn má finna fjölbreytta ferðaþjónustu sem þeir sem leið eiga um svæðið eru hvattir til að nýta sér.

Nánari upplýsingar um Kröflustöð >>


Útlit síðu: