Framkvæmdir
Á árinu 2011 eru eftirfarandi framkvæmdir í gangi:
Unnið er að upphafsframkvæmdum Búðarhálsvirkjunar. Byggingarhluti virkjunarinnar boðinn út í júní 2010. Útboð vegna véla og rafbúnaðar virkjunarinnar hafa einnig farið fram.
Við Kárahnjúka er unnið að ýmsum framkvæmdum sem tengjast frágangi vegna þeirra virkjanaframkvæmda sem staðið hafa yfir á síðastliðnum árum.
Unnið er að rannsóknum og samningum vegna þriggja nýrra virkjana í Þjórsá.
Landsvirkjun tekur einnig þátt í djúpborunarverkefninu.
