Djúpborunarverkefnið
Vonast er til að djúpborunarhola geti verið 5-10 sinnum öflugri en hefðbundnar háhitaholur og að slík hola gefi allt að 40-50 MW rafafl.
Sem stendur er djúpborun ekki möguleg leið til að leysa þarfir til orkuöflunar í náinni framtíð.
Fyrirtækin sem stofnuðu til djúpborunarverkefnisins eru HS Orka. hf, Landsvirkjun, Orkuveita Reykjavíkur og Orkustofnun. Seinna bættust í hópinn Alcoa og Statoil. Rannsóknaverkefnið hefur hlotið styrk úr fjölmörgum vísindasjóðum, þar á meðal U.S. National Science Foundation og International Continental Drilling Program.
Árið 2003 var sú ákvörðun tekin að bora fyrstu djúpborunarholuna á Reykjanesi. Sú hola var boruð á árunum 2004-2005 og náði niður á 3082 m dýpi. Því miður var ekki hægt að nota þessa holu þar sem hún stíflaðist þegar gerðar voru prófanir á henni í nóvember árið 2005. Ekki reyndist unnt að lagfæra holuna.
Árið 2006 ákváðu verkefnisstjórn IDDP og Landsvirkjun að bora djúpborunarholu í Kröflu. Áætlað var að hún næði 4,5 km dýpt árið 2009 og var gert ráð fyrir því að prófanir gætu hafist um haustið sama ár. Sú borun fékk snöggan endi þann 21. júní þegar borkrónan komst í snertingu við kviku.
Þrátt fyrir að ekki hafi tekist að ljúka djúpborunarholunni í Kröflu ákvað verkefnisstjórn IDDP verkefnisins að halda áfram rannsóknum á holunni í Kröflu. Voru gerðar þrýstiprófanir á holunni sumarið 2010 og var borholuvökvinn einnig rannsakaður. Holan reyndist vera mjög öflug eða 20-25 MW, en erfiðleikum veldur hversu vökvinn úr holunni er súr og tærandi.
IDDP verkefninu verður haldið áfram og er nú unnið úr þeirri þekkingu sem hefur verið aflað í verkefninu. Einnig stendur yfir hönnun á nýrri borholu á nýjum stað.
Á vef djúpborunarverkefnisins má fá ítarlegri upplýsingar: www.iddp.is >>
