Fossinn Hverfandi við yfirfall Hálslóns - Mynd: Emil Thor

Kárahnjúkavirkjun

Raforkuvinnsla Kárahnjúkavirkjunar hófst í nóvember 2007 þegar stöðin var formlega gangsett. Árið 2009 standa yfir ýmsar framkvæmdir sem eru frágangs- og lokaverkefni.

  • Á Hraunasvæðinu er unnið að hreinsun vinnusvæða.

  • Í Hafrahvammagljúfri er unnið að gerð 20 metra hárrar stíflu sem myndar hyl fyrir neðan Kárahnjúkastíflu. Vatn sem rennur um yfirfall stíflunnar mun því ekki dynja á bergveggnum. Vatnið í hylnum deyfir fallþungann.

Áður en framkvæmdir við Kárahnjúkavirkjun hófust hafði umfangsmikið mat á umhverfisáhrifum virkjunarinnar farið fram. Því lauk árið 2001 með úrskurði umhverfisráðherra. Orkan frá Kárahnjúkavirkjun fer til álvers Fjarðaáls í Reyðarfirði og voru orkusölusamningar þar um undirritaðir við Alcoa í mars 2003.

Vegalagning og aðrar undirbúningsframkvæmdir hófust síðla á árinu 2002, en raunverulegar framkvæmdir við virkjunina vorið 2003 þegar orkusölusamningarnir lágu fyrir.

Kárahnjúkavirkjun er um 690 MW að afli sem fæst úr sex aflvélum. Meðalrennsli í gegnum Fljótsdalsstöð er um 110 m3 á sekúndu en mesta mögulega rennsli um 144 m3 á sekúndu. Tryggð orkugeta frá stöðinni er um 4.600 GWst á ári. Með tilkomu virkjunarinnar var aukið við afl og orkuvinnslu í landinu um tæp 60%.

Nánari upplýsingar um Fljótsdalsstöð >>

Ítarlegar upplýsingar um framkvæmdina má fá á vef Kárahnjúkavirkjunar, www.karahnjukar.is. Vefnum er ekki lengur haldið við, en hann veitir upplýsingar um framgang verkefnisins.

Senda grein


Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica