Heimsóknir í aflstöðvar

Landsvirkjun hefur opið umhverfis landið

Samhliða orkufræðslu er boðið upp á áhugaverðar sýningar af ýmsum toga umhverfis landið. Meðal þeirra er ljósmyndasýningin Raunveruleikatékk sem er samstarfsverkefni með Listahátíð í Reykjavík og hönnunarsýningin Náttúran í hönnun, samstarfsverkefni með Hönnunarmiðstöð Íslands.

undefined
Frá sýningunni "Náttúran í hönnun" í Ljósafossstöð

Opið alla daga síðdegis í sumar. Aðgangur er ókeypis.

Verið velkomin á viðkomustaði okkar í sumar:

  • Blanda í Húnavatnssýslu: Dimmir hratt á draugaslóð – málverkasýning Baska
  • Búrfell í Þjórsárdal: Gengið að verki – ljósmyndasýning Jakobs Jakobssonar, Andlit Þjórsdæla – líf í Þjórsárdal í 1100 ár. Þjóðveldisbærinn
  • Krafla í Mývatnssveit: Kröflueldar – kvikmynd og fræðsla um orku í iðrum jarðar
  • Laxá í Aðaldal: Hvað er með Ásum – höggmyndir og goðafræði Hallsteins Sigurðssonar
  • Ljósifoss við Sog: Náttúran í hönnun – samstarfsverkefni með Hönnunarmiðstöð Íslands
  • Végarður í Fljótsdal: Framkvæmdir við Kárahnjúka í máli og myndum og ferðir inn í Fljótsdalsstöð

Í öllum stöðvum er sýningin Raunveruleikatékk – ljósmyndasýning í samstarfi við Listahátíð í Reykjavík.


Heimsókn í Ljósafossstöð

Í Ljósafossstöð eru sýningarnar Náttúran í hönnun og Raunveruleikatékk.

Lesa meira
 

Heimsókn í Blöndustöð

Baski - RagnheiðurÍ Blöndustöð stendur yfir sýning Baska (Bjarna Skúla Ketilssonar) um örlög Reynisstaðabræðra. Baski túlkar þessa sorglegu og dularfullu sögu í fjölbreyttu listformi.

Lesa meira
 

Fljótsdalsstöð

Végarður í FljótsdalFyrir ferðamenn sem áhuga hafa á því að kynna sér framkvæmdirnar við Kárahnjúka er tilvalið að koma við í Végarði í Fljótsdal.

Lesa meira
 

Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica