Heimsókn í Blöndustöð
Í Blöndustöð stendur yfir sýning Baska (Bjarna Skúla Ketilssonar) um örlög Reynisstaðabræðra. Baski túlkar þessa sorglegu og dularfullu sögu í fjölbreyttu listformi.
Dimmir hratt á draugaslóð
Baski (Bjarni Skúli Ketilsson) er fæddur á Akranesi 1966. Í æsku var Baski farinn að teikna og mála en lét fyrst verða af því að fara í akademískt nám um þrítugsaldur. Hann stundaði meðal annars nám í leikhúshönnun í Noregi og útskrifaðist 1988. Baski vann á Íslandi við ýmis störf í millitíðinni en seinna lá leiðin til Hollands til frekara listnáms þar sem hann útskrifaðist 1998 með BA-próf í listmálun og fagurfræði úr Aki Akademie voor beldende kunst Enschede.
Baski hefur haldið einkasýningar víðs vegar um Evrópu og hlotið ýmsar viðurkenningar Hægt er að sjá ýmis verk Baska á heimasíðu hans www.baski.nl
Sýningarskrá: Dimmir hratt á draugaslóð:
Raunveruleikatékk
Í Blöndustöð er einnig sýningin Raunveruleikatékk. Ljósmyndir Vigfúsar Sigurgeirssonar sýna Svein Björnsson, fyrsta forseta Íslands, á ferðum hans um Ísland, en Vigfús var ljósmyndari forsetaembættisins.
Sýningarskrá: Raunveruleikatékk
Í Blöndustöð líkt og á hinum stöðvunum okkar verður hægt að fræðast um umhverfisvæna raforkuframleiðslu á Íslandi, þar sem við erum fyrirmynd annara þjóða.
Nánari upplýsingar um Blöndustöð >>
Gestamóttaka Blöndustöðvar er opnin alla daga í sumar frá 13:00 – 17:00. Síðasti opnunardagur er 23. ágúst.
Ef gestir óska eftir leiðsögn um stöðina á faglegum nótum er þeim bent á að hafa samband með tveggja daga fyrirvara og panta leiðsögn um stöðina. Fyrirspurnum er svarað í síma 515 9000 og senda má tölvupóst á netfangið landsvirkjun hjá lv.is.
Hvernig kemst ég á staðinn?
Af þjóðvegi 1 í Langadal sunnan og austan Blönduóss er beygt inn í Blöndudal, þjóðveg 731 og yfir Blöndu sem leið liggur inn á Kjöl eftir þjóðvegi 732. Ef ekið er norður Kjöl er Blöndustöð fyrsta húsið sem komið er að í byggð.
Útivist og ferðamennska
Í Húnavatnssýslum eru margar áhugaverðar gönguleiðir sem vert er að kynna sér. Tilvalið er að aka hring um Vatnsdal og staldra við í Þórdísarlundi auk þess sem skoða má Þingeyrarkirkju. Þá er góð veiði í hinum fjölmörgu ám og vötnum svæðisins.
Í nágrenni Blöndustöðvar eru fjöllmargir áhugaverðir viðkomustaðir. Nefna má
- Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna á Reykjum í Hrútafirði.
- Selasetur Íslands á Hvammstanga
- Hafíssetrið á Blönduósi
- Textílsetur Íslands á Blönduósi
- Byggðasafn Skagfirðinga að Glaumbæ í Skagafirði
