Heimsókn í Búrfellsstöð
Gengið að verki - Ljósmyndasýning Jakobs Jakobssonar
Ljósmyndir Jakobs Jakobssonar, tæknifræðings, eru áhugaverð heimild um mannvirkjagerð á Íslandi. Jakob tók þátt í mörgum stórum byggingaframkvæmdum á Íslandi sem erlendis.
Á meðal þeirra mannvirkja sem Jakob tók þátt í að reisa eru Búrfellsvirkjun, álverið í Straumsvík og Findhornbrúin í skosku hálöndunum.
Jakob horfir á mannvirkin sem rísa af grunni af sama sjónarhóli og hann skoðar heiminn og er sýn hans ákaflega mannleg. Hvort sem hann tekur myndir úr nálægð eða úr fjarska leggur hann áherslu á fólk, sem er niðursokkið í viðfangsefni sín.
Raunveruleikatékk
Í Búrfellsstöð er einnig sýningin Raunveruleikatékk sem er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík og Landsvirkjunar. Á stöðvarhúsinu má sjá verk Kristleifs Björnssonar, Every Second Day.
Andlit Þjórsdæla
Í Búrfellsstöð eru upplýsingar um sögu og mannlíf í Þjórsárdal í 1200 ár, virkjun Þjórsár og baráttuna við Heklu. Upplýsingaspjöldin eru unnin í samvinnu við Árna Björnsson, þjóðháttarfræðing.
Fljúgandi steinsteypa
Á framhlið Búrfellsstöðvar má sjá stærstu lágmynd á Íslandi sem unnin er af myndhöggvaranum Sigurjóni Ólafssyni. Lágmyndin hefur fyrir löngu skapað sér sess í hugum Íslendinga sem einkennismynd fyrir fyrstu stórvirkjun Íslands, en finna má upplýsingar um Sigurjón og verk hans í stöðinni.
Sýningarskrá frá sýningu um verk Sigurjóns Ólafssonar árið 2008
Í stöðinni er stórt líkan af hálendinu sunnan Hofsjökuls þar sem landfræðilegar aðstæður á svæðinu koma vel fram. Þá er einnig sýnt myndband um Landsvirkjun og raforkuframleiðslu á Íslandi.
Gestastofan í Búrfellsstöð er opin virka daga frá 10-18 alla daga vikunnar. Síðasti sýningardagur er sunnudagurinn 15. ágúst.
Hvernig kemst ég á staðinn?
Tvær leiðir liggja að stöðvunum í Þjórsá og Tungnaá. Úr norðri er ekið yfir Sprengisand og úr suðri gegnum uppsveitir Árnessýslu. Af þjóðvegi 1, austan Selfoss, er beygt inn á þjóðveg 30 í átt að Flúðum. Af þeim vegi er beygt inn á þjóðveg 32, Árnes, sem liggur inn í Þjórsárdal og þaðan inn á Sprengisand og þar með fram hjá öllum virkjunum á Þjórsár- og Tungnaársvæðinu.
Landsvirkjun hefur í samvinnu við Vegagerð ríkisins látið setja bundið slitlag á leiðina úr suðri upp að Vatnsfelli en vart þarf að taka það fram að Sprengisandur er ekki fær nema fjórhjóladrifnum farartækjum.
Útivist og ferðamennska
Í nágrenni Búrfellsstöðvar má finna fjölbreytta ferðaþjónustu. Starfsfólk Landsvirkjunar vinnur í samvinnu við heimamenn að því að bæta dalinn á allan hátt og gera hann að sem áhugverðustum áningarstað ferðamanna. Þjórsárdalur hefur enda í seinni tíð orðið einn af vinsælli áningarstöðum ferðamanna á Suðurlandi.
- Þjóðveldisbærinn er opin frá 1. júní til um 30. ágúst alla daga vikunnar frá kl. 10 – 18.
