Fljótsdalsstöð
Fyrir ferðamenn sem áhuga hafa á því að kynna sér framkvæmdirnar við Kárahnjúka er tilvalið að koma við í Végarði í Fljótsdal.
Í gestastofu Landsvirkjunar í Végarði er í boði margháttaður fróðleikur. Hægt er að fræðast um byggingu Kárahnjúkavirkjunar og Fljótsdalsstöðvar í máli og myndum, skoða líkan af svæðinu og ýmislegt fleira. Einnig eru þar allar upplýsingar um aksturs- og gönguleiðir á svæðinu sem og ástand vega.
Raunveruleikatékk
Í Végarði er einnig sýningin Raunveruleikatékk, samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík og Landsvirkjunar. Sýndar eru ljósmyndir Silju Sallé sem hún tók á bænum Hjarðarfelli í Eyja- og Miklaholtshreppi.
Gestastofa í Végarði er opin milli kl. 13-17 alla daga frá 1. júní til 31. ágúst.
Boðið er upp á ferðir inn í stöðvarhús Fljótsdalsstöðvar til 10. ágúst frá kl. 13:30 til 15:30. Átta manns geta tekið þátt í hverri ferð. Senda má fyrirspurnir og beiðnir um heimsóknir stærri hópa á netfangið vegardur hjá lv.is.
Hvernig kemst ég í Végarð?
Frá Egilsstöðum er ekið inn með Lagarfljóti, öðru hvoru megin, framhjá Hengifossi og afleggjaranum upp að Kárahnjúkum. Ekið er áfram inn dalinn að Végarði sem er staðsettur um 4 km innar í dalnum, rétt fyrir innan Skriðuklaustur.
Hvernig kemst ég að Kárahnjúkum?
Úr Fljótsdal er ekið eftir vegi 910 sem leið liggur að Kárahnjúkum. Þegar ekið hefur verið yfir Kárahnjúkastífluna eru bílastæði við listaverkið Hringiða eftir Jónínu Guðnadóttur. Frá bílastæðinu er jafnframt hægt að ganga á göngustíg yfir stífluna og njúta útsýnisins yfir lónið og gljúfur.
Á meðan framkvæmdir við Kárahnjúkavirkjun stóðu yfir var sagt frá framgangi verksins á vef Kárahnjúkavirkjunar. Vefurinn er ekki lengur uppfærður.
Nánari upplýsingar um Fljótsdalsstöð >>
