Heimsókn í Ljósafossstöð
Í Ljósafossstöð eru sýningarnar Náttúran í hönnun og Raunveruleikatékk.
![]() |
| Björg Juto: Restore á sýningunni Náttúran í hönnun |
Náttúran í hönnun er samstarfsverkefni Hönnunarmiðstöðvar Íslands og Landsvirkjunar.
Á sýningunni er boðið í ferðalag um hlutbundna náttúru íslenskra hönnuða og skyggnst inn í hugarheim þeirra, meðal annars með áhugaverðum viðtölum.
Rúmlega 30 hönnuðir sýna verk sín. Á meðal þeirra eru: Árni Grétarsson, Brynhildur Pálsdóttir og Guðfinna Mjöll, Dagný Bjarnadóttir, Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir, Hanna Jónsdóttir, Jón Björnsson, Katrín Ólína, Jóhanna Methúsalemsdóttir, Hildur Yeoman, Snæfríð Þorsteins & Hildigunnur Gunnarsdóttir, Vík Prjónsdóttir og Tinna Gunnarsdóttir.
Sýningarstjóri er Hlín Helga Guðlaugsdóttir.
Raunveruleikatékk
Í Ljósafossstöð er einnig sýningin Raunveruleikatékk. Lettneska myndlistakonan Ieva Epnere sýnir myndir af íslenskum unglingum í myndröð sem hún kallar I would like to be … . Þar spyr hún íslenska unglinga um framtíðardraumana og myndar þá í sérherberginu heima, áður en þeir fljúga úr hreiðrinu. Raunveruleikatékk er samstarfsverkefni Landsvirkjunar og Listahátíðar í Reykjavík.
Ljósafossstöð er opin frá 13 til 17 virka daga í sumar og frá 13 til 18 um helgar. Síðasti sýningardagur er 28. ágúst.
Nánari upplýsingar um Sogsstöðvar >>
Hvernig kemst ég á staðinn?
Sogsstöðvarnar eru á „Þingvallahringnum“ þ.e. við þjóðveg 36 sem liggur frá Mosfellsbæ til Þingvalla og þaðan til suðurs niður með Soginu þar sem stöðvarnar eru.
Við Selfoss undir Ingólfsfjalli er hægt að fara þjóðveg 35 af þjóðvegi 1 og beygja inn á þjóðveg 36 ofan við Þrastarlund og þaðan að stöðvunum.

