Raforkuvinnsla

Landsvirkjun rekur nú ellefu vatnsaflsstöðvar og tvær jarðgufustöðvar auk einnar til neyðarnota sem knúin er eldsneyti.

Raforkuvinnsla Landsvirkjunar inn á flutningskerfi Landsnets nam 12.154 GWst árið 2009. Þetta er 1,5% samdráttur frá árinu 2008. Hlutur vatnsafls í vinnslu raforku nam 11.687 GWst (96%) og jarðgufustöðva 467 GWst (4%).

Heildarvinnsla rafmagns í landinu árið 2009 var 16.467 GWst og nemur hlutur Landsvirkjunar um 72,2% sem er lækkun um 2,8 prósentustig frá fyrra ári.

Hlutur Landsvirkjunar í raforkuvinnslu á  Íslandi með vatnsafli árið 2009 var 96% og 11,8% í jarðgufu. Raforkuvinnsla í landinu skiptist þannig að 73% eru unnin með vatnsafli og 27% með jarðgufu.

Á árinu 2009 nam sala á raforku til stóriðju 10.365 GWst.

Raforkuvinnsla, kaup og sala árin 2007-2009:

 

  2009
2008 2007
Heildarvinnsla raforku
12.154 Gwst
12.345 Gwst
8.481 GWst
Raforkukaup 392 GWst
402 GWst
422 GWst
Sala á almennum markaði 2.181 GWst
2.418 GWst
2.645 GWst
Sala til stóriðju 10.365 GWst
10.330 GWst
6.258 GWst

Senda grein


Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica