Útboð og innkaup
Landsvirkjun birtir upplýsingar um útboð hér á vefnum. Einnig er hér að finna upplýsingar um liðin útboð.
Landsvirkjun birtir upplýsingar um þau útboð sem auglýst hafa verið. Þegar tilboð hafa verið opnuð eru þau birt hér á vefnum.
Notið valmöguleikana hér til vinstri til þess að nálgast upplýsingar um útboð og innkaup hjá Landsvirkjun.
Landsvirkjun hefur sett sér innkaupastefnu sem hefur það meðal annars að markmiði að gera innkaup skýr og gagnsæ.
Innkaupastefna Landsvirkjunar
1. Tilgangur og umfang
Tilgangur þessa skjals er að lýsa stefnu Landsvirkjunar í innkaupamálum og framkvæmd innkaupa. Með innkaupum er átt við öflun hverskyns aðfanga og þjónustu vegna reksturs og framkvæmda Landsvirkjunar.2. Innkaupastefna
Það er stefna Landsvirkjunar að:
- Beita hagkvæmustu innkaupaaðferðum með markvissum og skipulögðum vinnubrögðum við innkaup og stuðla þannig að hagkvæmni í rekstri og framkvæmdum fyrirtækisins.
- Taka tillit til gæða- og umhverfissjónarmiða jafnt sem kostnaðar við innkaup. Ef vörur eru sambærilegar að öðru leyti ber að velja þá tegund sem telst síður skaðleg umhverfinu.
- Samræma innkaup fyrirtækisins.
- Ábyrgð á innkaupum sé á hendi þess sem fer með viðkomandi málaflokk enda séu þau ávallt í samræmi við samþykktar fjárhagsáætlanir.
- Meginreglan sé sú að öll innkaup Landsvirkjunar fari fram með útboðum. Þó er heimilt að framkvæma innkaup með verðfyrirspurnum eða beinum samningum ef að sýnt þykir að slíkt muni skila hagstæðari innkaupum og þá í samræmi við innkaupareglur. Öll innkaup skulu gerð skriflega og skjalfest.
- Gæta þess að innkaup séu skýr og gagnsæ.
- Við innkaup Landsvirkjunar skuli þess gætt að fylgt sé í hvívetna íslenskum lögum og reglum. Þetta á einnig við um alþjóðasamninga, s.s. EES-samninginn.
