Útboð í gangi

21.06.2010 - 26.08.2010, kl.14:00 Útboð í gangi

Búðarhálsvirkjun - Útboð BUD-01, nr. 20015 - Byggingarvinna

Landsvirkjun óskar eftir tilboðum í byggingarvinnu við Búðarhálsvirkjun samkvæmt útboðsgögnum BUD-01.

Verkinu er skipt í þrjá verkhluta (Verkhluta 11, 14 og 15).

Verkhluti 11 Sporðöldustífla

Verkhlutinn felst í gerð Sporðöldustíflu. Um er að ræða jarðvegsstíflu í tveimur hlutum, 1100 m og 170 m löngum, og er stíflan hæst um 25 m. Aðrir verkþættir er bygging hjáveitu á framkvæmdatíma, bygging yfirfalls og flóðvars sem og ýmis vegagerð á svæðinu.

Helstu magntölur eru áætlaðar:

Laus gröftur
200 000 m³
Sprengigröftur115 000 m³
Fyllingar
660 000 m³
Bergídæling
14 000 m³

ii.  Verkhluti 14  Aðrennslisgöng

Verkhlutinn felst í að sprengja og styrkja aðrennslisgöng virkjunarinnar. Göngin eru skeifulaga og tæpir 15 m á hæð og rúmir 11 m á breidd og lengd þeirra er um 4 km. Aðrir verkþættir eru bygging inntaks við gangamunna, lagfæringar og styrkingar á jöfnunarþró sem og stutt aðkomugöng.

Helstu magntölur eru áætlaðar:

Laus gröftur
22 000 m³
Sprengigröftur120 000 m³
Gangagröftur560 000 m³
Sprautusteypa
13 000 m³

iii.     Verkhluti 15  Stöðvarhús

Verkhlutinn felst í byggingu á stöðvarhúsi og inntaksmannvirkjum ásamt greftri frárennslisskurðar.  Aðrir verkþættir eru m.a. útvegun og uppsetning á öllum húskerfum og yfirborðs frágangur.

Helstu magntölur eru áætlaðar:

Gröftur
170 000 m³
Steinsteypa20 000 m³
Mót33 000 m2
Bendistál1 600 000 kg

Bjóðendum er heimilt að bjóða í einn verkhluta, tvo eða þá alla.

Framkvæmdum skal að fullu lokið haustið 2013.

Útboðsgögn BUD-01 verða afhent í móttöku Landsvirkjunar, Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík, frá og með mánudeginum 21. júní 2010 gegn óafturkræfu gjaldi að upphæð kr. 20.000,- fyrir hvert eintak.

Tilboðum skal skila í móttöku Landsvirkjunar, Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík, fyrir klukkan 12:00 fimmtudaginn 26. ágúst 2010, þar sem þau verða opnuð sama dag klukkan 14:00 og lesin upp að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.

 

Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica