Útboð í gangi

21.12.2011 - 22.02.201214:00 Útboð í gangi

Búðarhálsvirkjun, útboð nr. 20067, 55 MVA vélarspennar


Landsvirkjun óskar eftir tilboðum í framleiðslu á vélarspennum fyrir Búðarhálsvirkjun.

Verkið felst í hönnun, framleiðslu, prófunum, pökkun, afhendingu og eftirliti með uppsetningu á 55 MVA „shell type“ vélarspennum samkvæmt nánari lýsingu í útboðsgögnum.

Rekstrarspenna er 245 kV.

Áætlaður afhendingartími spenna er í lok mars 2013.

Útboðsgögn á ensku verða afhent í móttöku Landsvirkjunar, Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík, gegn óafturkræfu gjaldi að upphæð kr. 3.000 fyrir hvert eintak, frá og með fimmtudeginum 22. desember 2011.

Tilboðum skal skila í móttöku Landsvirkjunar, Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík, fyrir klukkan 12:00 þriðjudaginn 21. febrúar 2012, þar sem þau verða opnuð sama dag klukkan 14:00 og lesin upp að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.

 

Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica