Hágöngulón
Mynd 1 af 3
1 2 3

Hágöngumiðlun

Tilgangur Hágöngumiðlunar er að auka miðlun á vatnasviði Köldukvíslar, sem nýtist virkjunum á Þjórsár- og Tungnaársvæðinu. Við tilkomu Hágöngumiðlunar jókst orkugeta raforkukerfisins um 200 GWst á ári.

Hágöngulón er 37 km2 stórt og nær yfir svæði sem er fyrir austan og norðaustan við fjallið Syðri-Háganga. Á þessu svæði sameinast árnar Kaldakvísl og Sveðja. Á lónbotninum eru að mestu leyti setlög, en einnig að litlu leyti jökulruðningur. Sveðjuhraun gengur út í lónið að austan og er hluti hraunjaðarins undir vatni við hæstu vatnsstöðu í lóni.

Stórt jarðhitasvæði fór undir vatn við gerð miðlunarinnar, en það kemur úr vatni þegar vatnsborðið lækkar á veturna. Líklegt er að þar myndist með tímanum eyjar úr útfellingum frá hverunum. Gera má ráð fyrir því að þessi jarðhiti verði nýttur og eru rannsóknir á nýtingu hans þegar hafnar.

Við rekstur miðlunarinnar er hleypt vatni úr lóninu um botnrás aðalstíflunnar í Köldukvíslarfarvegi. Vatnið rennur um farveg Köldukvíslar til Þórisvatns. Á sumrin er vatni safnað í Hágöngulón. Þess vegna rennur afar lítið vatn um Köldukvíslarfarveg að sumarlagi, einkum leysinga- og lindarvatn sem að hluta til stafar frá leka úr lóninu. Að vetrarlagi er rennslið um farveginn um 25-30 m3/s og er þá nánast öllu vatni úr lóninu veitt á hverjum vetri til Þórisvatns.


Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica