Kárahnjúkastífla og Desjarárstífla. Snæfell í bakgrunni
Mynd 1 af 5
1 2 3 4 5

Hálslón

Stíflurnar Desjarárstífla og Sauðárdalsstífla auk Kárahnjúkastíflu stífla farveg Jökulsár á Dal og mynda Hálslón

Jökulsá á Dal er stífluð við Fremri Kárahnjúk og er þar jafnframt langstærsta stífla Kárahnjúkavirkjunar sem nefnist Kárahnjúkastífla. Stíflan er 700 m löng og 198 m há grjótstífla með steyptri þéttikápu á vatnshliðinni. Kárahnjúkastífla er meðal þeirra stærstu í heiminum af þessari gerð og hæsta grjótstífla í Evrópu með steyptri þéttikápu.

Austan við Kárahnjúkastíflu er Desjarárstífla og í dalverpi að vestanverðu er Sauðárdalsstífla. Þessar hliðarstíflur eru grjót- og malarstíflur með þéttikjarna úr jökulruðningi. Saman mynda stíflurnar þrjár Hálslón sem er 57 km² að stærð. Vatnshæðin er 625 m y.s. við fullt lón.

Í flestum árum fyllist Hálslón síðsumars. Þegar lónið er fullt er vatni veitt um yfirfall Kárahnjúkastíflu þaðan sem það steypist í um 90 m háum fossi niður í Hafrahvammagljúfur.


Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica