Þórisvatnsmiðlun

Þórisvatnsmiðlun var byggð á árunum 1970-1972 í tengslum við virkjun Þjórsár við Búrfell.

Gerð miðlunarinnar fór þannig fram að áin Kaldakvísl var stífluð við Sauðafell og er henni nú veitt um skurð inn í Þórisvatn við norðanvert vatnið. Við útfall Þórisvatns við norðanvert vatnið var byggð Þórisóssstífla sem stíflar afrennsli vatnsins og veitir hún rennsli Köldukvíslar inn í vatnið.

Nýju útrennsli Þórisvatns var valinn staður við suðurenda vatnsins með vesturhlíð Vatnsfells. Þar var grafinn veituskurður út úr vatninu og steinsteypt lokuvirki byggt í skurðinum til að stjórna rennsli úr vatninu. Veitan var nefnd Vatnsfellsveita og um hana er vatni úr Þórisvatni veitt í gegnum Vatnsfellsvirkjun til Krókslóns ofan Sigöldustöðvar og þaðan til annarra stöðva neðar á vatnasviðinu.

Þórisvatnsmiðlun er mikilvægur hlekkur í veitukerfi Landsvirkjunar, því í vatnið rennur allt vatn sem safnast saman í Kvíslaveitu og Hágöngumiðlun. Vatnsborð Þórisvatns fer í 577 m y.s. þegar miðlunarrýmið er fullnýtt. Í þeirri hæð rúmar vatnið 2.389 Gl og flatarmál þess er 88 km2. Ekki er hægt að nýta allt það vatn til miðlunar, því ekki er hægt að hleypa öllu vatni úr Þórisvatni. Lægst getur vatnsborðið í vatninu orðið 556 m y.s. og rúmast þá 1.006 Gl. í vatninu. Við þessa hæð á vatnsborði yrði flatarmál Þórisvatns 53 km2. Svo lágt hefur vatsborðið þó aldrei orðið, en það hefur stundum farið niður í 560 m y.s.

Ef tekið er tillit til þess magns af vatni sem hægt er að nýta er miðlunarrýmið í Þórisvatni því um 1.383 Gl.


Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica