• Jarðgufustöðin Bjarnarflag í Mývatnssveit
    Jarðgufustöðin í Bjarnarflagi í Mývatnssveit

Bjarnarflag

Jarðgufustöðin í Bjarnarflagi í Mývatnssveit er minnsta aflstöðin í eigu Landsvirkjunar. Afl stöðvarinnar er 3 MW og nýtir hún gufu jarðhitasvæðisins við Námafjall til raforkuframleiðslu.

Laxárvirkjun lét byggja stöðina árið 1969 en Landsvirkjun eignaðist stöðina 1. júlí 1983 þegar Laxárvirkjun sameinaðist Landsvirkjun. Landsvirkjun keypti ennfremur gufuveituna í Bjarnarflagi af Jarðvarmaveitum ríkisins, en auk þess sem hún veitir rafstöðinni jarðgufu sér hún m.a. Hitaveitu Mývatnssveitar fyrir jarðgufu.

Orkuvinnsla stöðvarinnar er um 18 GWst á ári.


Bjarnarflag

Engin grein fannst.


Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica