Blöndustöð
Stöðvarhús Blöndustöðvar er á rúmlega 200 metra dýpi. Þar stendur húsið og hverflar hennar sem framleiða 150 MW afl í manngerðri hellishvelfingu. Aðgengi að stöðinni er um lyftu og 800 metra löng aðkomugöng sem eru bílfær. Þá er stöðin sérstæð fyrir þær sakir að hún er fyrsta virkjunin sem alfarið er hönnuð af Íslendingum.
Við gerð Blöndustöðvar varð til um 56 km2 stórt miðlunarlón. Til þess að endurheimta þann gróður sem fór undir miðlunarlón Blöndustöðvar hafa verið græddir upp meira en 3.000 hektarar lands. Þá er áhugavert að eftir virkjun Blöndu er rennsli árinnar orðið jafnt nánast allan ársins hring og áin orðin ein allra besta laxveiðiá landsins. Að staðaldri starfa um 15 manns við Blöndu.


