• Stöðvarhús Búrfellsstöðvar
    Búrfellsstöð
  • Búrfellsstöð
    Búrfellsstöð

Búrfellsstöð

Áður en Þjórsá var virkjuð við Búrfell rann áin austur fyrir fjallið og síðan suður með því. Þjórsá er nú stífluð ofan fjallsins og veitt norðan þess í gegnum Sámstaðamúla ofan í Þjórsárdal. Göng liggja niður í gegnum Sámsstaðamúla og er stöðvarhúsið undir múlanum í Þjósárdal.

Þjórsá er stífluð um 4 km ofan stöðvarinnar og veitt úr farvegi sínum í gegnum sérstakt ísskolunarmannvirki sem gengur norður úr stíflunni á vesturbakka árinnar. Þaðan til vesturs liggur aðveituskurður sem í er stjórnloka yfir að hvilft milli Búrfells, Skeljafells og Sámsstaðamúla. Þar safnast vatnið í miðlunarlón sem nefnist Bjarnarlón. Úr lóninu er vatninu veitt um aðrennslisskurð að inntaki aðrennslisganga sem sprengd eru í gegnum blágrýtislög Sámsstaðamúla. Þau eru nokkurn veginn lárétt og ófóðruð að mestu.

Hverflar stöðvarinnar eru sex. Á árunum 1997-98 voru sett ný vatnshjól í alla hverflana. Við það jókst afl Búrfellsstöðvar úr 210 í 270 MW.

Framhlið stöðvarhússins er skreytt veggmynd eftir Sigurjón Ólafsson og framan við það stendur Hávaðatröllið, einnig eftir Sigurjón. Frá stöðvarhúsinu liggja þrjár 220 kV línur til Reykjavíkur og ein til Sigöldustöðvar.

Ítarlegri upplýsingar um Búrfellsstöð

Vegakort Þjórsársvæðis


Búrfellsstöð

Búrfellsstöð er 270 MW aflstöð innst í Þjórsárdal.

Lesa meira
 

Virkjunarsagan

Fyrstu hugmyndir um virkjun Þjórsár við Búrfell komu fram um 50 árum áður en ráðist var í framkvæmdir.

Lesa meira
 

Ísakot, musteri óttans

Ísskolunarmannvirkið í Þjórsá var hannað til að verja Búrfellsstöð gegn svonefndum þrepahlaupum, en það eru ísstíflur, sem mynduðust í ánni.

Lesa meira
 

Tæknilegar upplýsingar

Kennitölur og tæknilegar upplýsingar um Búrfellsstöð.

Lesa meira
 

Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica