Upplýsingamiðstöðin í Végarði
Í Végarði starfrækir Landsvirkjun upplýsingamiðstöð. Þar má fræðast í ;máli og myndum um Kárahnjúkavirkjun, skoða landslags- og framkvæmdalíkan og hægt er að glöggva sig á náttúrufari og ferða- og útivistarmöguleikum.
Végarður er félgasheimili Fljótsdalshrepps sem hefur nú verið endurbyggt og stækkað til að gegna einnig hlutverki upplýsingamiðstöðvar.
Síðastliðin ár hefur verið mikil aðsókn að upplýsingamiðstöðinni. Allt að 15 þúsund manns skoðuðu sýninguna á ári þegar framkvæmdir stóðu sem hæst.
Frá Egilsstöðum er ekið inn með Lagarfljóti öðru hvoru megin. Við Bessastaði er afleggjari að Kárahnjúkum og upplýsingaskilti um framkvæmdirnar. Végarður er spölkorn innar í dalnum, um 1 km innan við Skriðuklaustur. Síminn í Végarði er 470 2570.
Gert er ráð fyrir því að sýningin í Végarði verði opin yfir sumartímann til ársins 2013.
Mannvirkin við Kárahnjúka
Ef ekið er upp að Kárahnjúkum er tilvalið að virða fyrir sér mannvirkin frá útsýnispallinum í grennd við Desjarárstíflu. Þaðan má sjá neðsta hluta Hálslóns, Kárahnjúkastíflu og Desjarárstíflu.
Stöðvarhúsið í Fljótsdal
Stöðvarhús Kárahnjúkavirkjunar (Fljótsdalsstöð) er lokað almenningi. Strangar öryggisreglur gilda um kynnisferðir gesta inn í stöðvarhúsið og þarf að liggja fyrir skriflegt leyfi um aðgang í samræmi við reglur Neytendastofu þar að lútandi.
Gegnt stöðvarhúsinu í Fljótsdal er gott útsýni að stöðvarhúsinu yfir dalinn og línurnar sem liggja frá stöðvarhúsinu. Þar hefur verið komið fyrir útsýnispalli.

