Hrauneyjafossstöð
Hrauneyjafossstöð er þriðja stærsta raforkuver Íslands og stendur á fallegum stað í jaðri hálendisins, á Sprengisandsleið. Að stöðinni liggur vegur lagður bundnu slitlagi alla leið frá Reykjavík en Landsvirkjun stóð að endurbótum á veginum í samstarfi við Vegagerðina. Þegar bygging virkjunarinnar stóð yfir störfuðu þegar mest var um 640 manns á svæðinu.
Útivist og ferðaþjónusta
Hrauneyjafossstöð er í leið þeirra sem ferðast yfir Sprengisand. Hálendismiðstöðin í Hrauneyjum stendur í um 1 km fjarlægð frá stöðinni og sinnir þjónustu við ferðamenn. Hrauneyjar eru í raun miðpunktur á hálendinu austan Þjórsár, en þaðan liggja vegir til vinsælustu áningarstaða ferðalanga á svæðinu. Stuttur akstur er í Landmannalaugar og Veiðivötn og kjörið er að á við Hrauneyjar áður en haldið er norður Sprengisand.

