Virkjunartilhögun
Virkjunartilhögun Hrauneyjafossstöðvar
Hrauneyjafossstöð var reist á árunum 1977- 1981 og hófst rekstur stöðvarinnar árið 1981. Í stöðinni eru þrjár 70 MW vélasamstæður. Tungnaá er stífluð á fremur flötu landi um 1,5 km ofan við Hrauneyjafoss og um 5 km neðan við Sigöldustöð. Er hæðarmunurinn þar á milli um 15 m. Við stífluna myndast 8,8 km² dægurmiðlunarlón.
Fremur lágreist jarðvegsstífla teygir sig eftir hraunflákunum á suðurbakka árinnar. Um eins kílómetra langur aðrennslisskurður liggur frá lóninu í norður um lægð í Fossöldu að inntaki við norðurbrún öldunnar. Þaðan liggja þrjár stálpípur (4,8 m í þvermál) 272 m niður hlíðina að stöðvarhúsi. Frárennslisskurður er rúmlega eins kílómetra langur og liggur út í Sporðöldukvísl sem síðan rennur í Tungnaá. Tengivirki stöðvarinnar er innan dyra í stöðvarhúsinu og er það einangrað með gasi.
