Laxárstöðvar
Laxárstöðvar nýta fallið í gljúfrunum við bæinn Brúar neðst í Laxárdal. Þaðan fellur áin út í Aðaldal. Laxá rennur úr Mývatni sem er 38 km2 að flatarmáli og í um 278 m hæð yfir sjó. Áin fellur síðan eftir endilöngum Laxárdal og um Aðaldal til sjávar í Skjálfandaflóa skammt innan við Húsavík. Lengd hennar frá Mývatni til sjávar er um 58 km. Laxá fellur á hrauni alla leið að Æðarfossum þar sem hún steypist fram af Hraunbrúninni um 1 km frá sjó.
Aðrennsli í Mývatn á sér einkum stað neðanjarðar gegnum hraunlög og veldur það jöfnu rennsli úr vatninu sem er ákjósanlegt fyrir virkjun vantsafls.
Við Brúar fellur Laxá niður um 70 m á 1.800 m leið og er meðalrennslið þar um 43 m³/s. Fall þetta er virkjað með þremur stöðvum og er afl stöðvanna alls 27,5 MW.
Saga Laxárstöðva
Akureyringar höfðu frumkvæði að virkjun Laxár við Brúar til þess að sjá Akureyri fyrir rafmagni. Árið 1950 gerðist ríkið meðeigandi Akureyrarbæjar í Laxárvirkjun þegar ráðist var í byggingu Laxárstöðvar II. Laxárvirkjun gegndi lykilhlutverki í rafvæðingu Norðurlands og Laxárstöðvar sjá stórum hluta þess fyrir rafmagni. Árið 1983 var Laxárvirkjun sameinuð Landsvirkjun.

