• Sigöldustöð
    Sigöldustöð
  • Loftmynd af Sigöldustöð
    Loftmynd af Sigöldustöð og Krókslóni

Sigöldustöð

Virkjunin er á margan hátt sérstök en stöðin stendur inni á hálendinu nokkuð sunnan Þórisvatns. Við stöðina eru engar aðrar byggingar. Mörgum þykir því sérstakt að aka fram á mannvirkið í miðjum óbyggðum.

Rekstur Sigöldustöðvar hófst árið 1977. Hún var reist á árunum 1973-77 af Landsvirkjun í kjölfar virkjunar við Búrfell og er því önnur vatnsaflsstöðin í röðinni á Þjórsár- og Tungnaársvæðinu. Í stöðinni eru þrjár 50 MW vélasamstæður sem voru gangsettar á árunum 1977-1978.

Tungnaá er stífluð efst í gljúfrunum ofan við Sigöldu og myndast við það 14 km² miðlunarlón, Krókslón. Sigöldustífla er 925 m löng grjótstífla með malbiksklæðningu vatnsmegin. Stíflan er 40 m há í gljúfrinu þar sem hún er hæst. Úr Krókslóni er vatninu veitt eftir 1 km löngum aðrennslisskurði gegnum ölduna að inntaki á vesturbrún Sigöldu. Frá því liggja þrjár 216 m langar þrýstivatnspípur, 4,3 m í þvermál, að stöðvarhúsinu sem stendur í neðanverðri öldunni norðan árinnar og er að nokkru grafið inn í hlíð Sigöldu. Nýtileg fallhæð virkjunarinnar er 74 m. Frá stöðvarhúsinu er 550 m langur frárennslisskurður út í Hrauneyjafosslón.

Sigöldustöð er tengd raforkukerfi landsins með 220 kV línum til Búrfells-, Hrauneyjafoss- og Vatnsfellsstöðva. Einnig liggur frá tengivirki stöðvarinnar 132 kV lína til suðausturs, svonefnd Suðurlína, sem myndar hluta byggðalínuhringsins umhverfis landið.

Nánari upplýsingar um Sigöldustöð


Sigöldustöð

Sigöldustöð er 150 MW aflstöð sem nýtir 74 m fall á milli Krókslóns og Hrauneyjalóns. Stöðin var gangsett árið 1977

Lesa meira
 

Einstakur grafreitur

Við Sigöldustöð er bifreiðin Petrína Steingrímsdóttir grafin.

Lesa meira
 

Tæknilegar upplýsingar

Kennitölur og tæknilegar upplýsingar um Sigöldustöð.

Lesa meira
 

Jarðfræðin við Sigöldu

Virkjanirnar við Sigöldu og Hrauneyjafoss nýta fall Tungnaár vestur í gegnum móbergshryggina Sigöldu austar og Fossöldu vestar og norðar.

Lesa meira
 

Yfirlitsmynd

Á myndinni sést Krókslón lengst til hægri. Úr því rennur vatn um aðveituskurðinn að stöðvarhúsinu.

Lesa meira
 

Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica