Einstakur grafreitur
Í kvosinni norður af Sigöldustöð er allsérstakur legstaður. Þar hvílir Petrína, bifreið af gerðinni Dodge Weapon 1942.
Síðustu æviár sín var Petrína í eigu Halldórs Eyjólfssonar á Rauðalæk, eða þar til 1981 að hún gaf upp öndina. Þá lét Halldór grafa hana í Einarsdal í Sigöldu. Sóknarpresturinn var viðstaddur en Halldór kastaði rekunum sjálfur.
Áður en Petrína komst í eigu Halldórs á Rauðalæk var hún helsta ökutæki mælingamanna Raforkumálstjóra (1951-1959) og eitt af verkefnum hennar og mælingamanna var að mæla endilangan farveg jökulánna. Á þessum árum voru engar virkjanir á svæðinu og ár voru allar óbrúaðar. Tíðkaðist því að fara yfir Tungnaá á Hofsvaði sunnan við þar sem Tungnaá rennur inn í Krókslón.
Í einni af sínum síðustu ferðum fyrir Raforkumálastjóra bilaði gírkassinn í Petrínu. Endasentist bíllinn aftur á bak niður Frostastaðahálsinn Landmannalaugamegin og endaði utan vegar. Þótti Petrína ekki til stórræðanna eftir það. Þá varð það að Halldór á Rauðalæk keypti Petrínu en hann hafði iðulega verið bílstjóri hennar hjá Raforkumálastjóra.
Nafnið Petrína gáfu mælingamenn bílnum eftir Petrínu Jakobsson, miklum kvenskörungi sem stýrði teiknistofu Raforkumálastjóra. Föðurnafnið er hins vegar tengt Steingrími Pálssyni sem var landmælingamaður hjá Raforkumálastjóra á 6. áratugnum.
