Sogsstöðvar
Virkjanirnar við Sogið eru meðal elstu aflstöðva Íslendinga. Virkjað var í Soginu til að veita rafmagni til Reykjavíkur en áður hafði verið ráðist í byggingu Elliðaárstöðvar. Þóttu þetta gífurlegar framkvæmdir og um þær stóðu nokkrar deilur, mestar um kostnað og fjármögnun.
Fyrst var Ljósifoss virkjaður og við hann er Ljósafossstöð kennd en hún var reist á síðari hluta fjórða áratugarins og hóf starfsemi árið 1937. Seinna var Írafossstöð reist og síðast Steingrímsstöð.
Við Sogsstöðvar starfa að staðaldri um 20 manns.



