Írafossstöð

ÍrafossstöðMeð Írafossstöð er fall tveggja neðri fossanna í Soginu, Írafoss og Kistufoss virkjað. Samtals er fallhæðin 38 m.

Sogið er stíflað ofan við Írafoss nánast í sömu hæð og frárennsli Ljósafossstöðvar. Inntaksmannvirki eru á austurbakka árinnar og fer vatnið þaðan um brött fallgöng að stöðvarhúsi neðanjarðar en frá því liggja hallalítil frárennslisgöng undir árfarveginn sem liggur í sveig neðan við stífluna og opnast þau á vesturbakka árinnar neðan við Kistufoss.

Rekstur stöðvarinnar hósf árið 1953 með tveimur 15,5 MW vélasamstæðum en stöðin var síðan stækkuð með einni vél til viðbótar (16,7 MW) árið 1963 eftir að miðlun frá Þingvallavatni varð möguleg um Steingrímsstöð.

Senda grein


Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica