Endurbætur á Sogsstöðvum
Miklum endurbótum á Sogsstöðvum lauk árið 2004. Mannvirki öll og búnaður Sogsstöðva voru kominn vel til ára sinna og höfðu bilanir farið vaxandi. Af þessum sökum var ráðist í gagngerar endurbætur á stöðvunum.
Um var að ræða viðgerðir og styrkingar, meðal annars með tilliti til jarðskjálfta, á steyptum mannvirkjum, endurbætur á vélbúnaði og endurnýjun rafbúnaðar, varnarbúnaðar og stýribúnaðar stöðvanna. Eftir þessar framkvæmdir er talið að stöðvarnar geti verið í fullum rekstri næstu áratugina.
Nú er svo komið að þessar gömlu stöðvar framleiða meira rafmagn en nokkru sinni fyrr og má því segja að þær hafi gengið í endurnýju lífdaga. Vegna endurbótanna hefur losnað rými í Ljósafossstöð sem framvegis verður notað sem sýningar- og fæðsluaðstaða. Þar hafa verið haldnar listsýningar og Þjóðminjasafnið sýndi þar muni sem tengjast íslenskri útskurðarlist.


