Straumsvík
Gasaflstöðin við álverið í Straumsvík var tekin í notkun 17. janúar árið 1969. Í notkun eru tvær vélasmstæður sem hvor um sig hafa 17 MW afl. Þær eru framleiddar í Þýskalandi. Stöðin er sett upp sem varaaflstöð fyrir álverið í Straumsvík. Einnig er hún notuð til þess að jafna spennusveiflur í orkukerfinu.
Frá 1969 – 2000 stóðu vélar stöðvarinnar á steyptum undirstöðum í hrauninu austan við álverksmiðjuna, líkt og járnbrautarvagnar.
