• Sultartangastöð
    Sultartangastöð
    Sultartangastöð

Sultartangastöð

Sultartangastöð er um 15 km norðaustan Búrfellsvirkjunar í Gnúpverjahreppi rétt við mörk Árnes- og Rangárvallasýslna.

Stöðin var gangsett árið 1999. Hún nýtir vatn Tungnaár sem hefur áður knúið vélar Hrauneyjafoss- og Sigöldustöðvar á leið sinni ofan af hálendinu. Einnig nýtir hún rennsli Þjórsár, en árnar tvær sameinast í Sultartangalóni fyrir ofan stöðina. Af þessu sökum er hún ekki eins háð sveiflum í vatnsbúskap og margar aðrar stöðvar og líkist Búrfellsstöð að því leyti.

Svæðið í kringum Sultartangastöð er meðal Gnúpverja nefnt Bláskógar en ekki er ljóst hvernig nafngiftin er tilkomin þar sem engan trjágróður er að finna á svæðinu. Þó má leiða líkum að því að svo hafi verið áður fyrr.

Nánari upplýsingar um Sultartangastöð í bæklingi


Framkvæmdirnar við Sultartanga

Löngu áður en hafist var handa við byggingu stöðvarinnar voru Þjórsá og Tungnaá stíflaðar á árunum 1982-1984 svo úr varð Sultartangalón. Framkvæmdir við sjálfa stöðina hófust árið 1997.

Lesa meira
 

Listaverkið Sólalda

Sigurður Árni Sigurðsson er höfundur listaverksins Sólöldu við Sultartangastöð. Sólalda er samspil ljóss, skugga og málmplatna standa út úr vegg stöðvarhússins. Á hádegi verða skuggar vængjanna á listaverkinu allir lóðréttir.

Lesa meira
 

Tæknilegar upplýsingar

Kennitölur og tæknilegar upplýsingar um Sultartangastöð

Lesa meira
 

Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica