Sultartangastöð
Sultartangastöð er um 15 km norðaustan Búrfellsvirkjunar í Gnúpverjahreppi rétt við mörk Árnes- og Rangárvallasýslna.
Stöðin var gangsett árið 1999. Hún nýtir vatn Tungnaár sem hefur áður knúið vélar Hrauneyjafoss- og Sigöldustöðvar á leið sinni ofan af hálendinu. Einnig nýtir hún rennsli Þjórsár, en árnar tvær sameinast í Sultartangalóni fyrir ofan stöðina. Af þessu sökum er hún ekki eins háð sveiflum í vatnsbúskap og margar aðrar stöðvar og líkist Búrfellsstöð að því leyti.
Svæðið í kringum Sultartangastöð er meðal Gnúpverja nefnt Bláskógar en ekki er ljóst hvernig nafngiftin er tilkomin þar sem engan trjágróður er að finna á svæðinu. Þó má leiða líkum að því að svo hafi verið áður fyrr.

