Sultartangastöð

Framkvæmdirnar við Sultartanga

Framkvæmdir við byggingu Sultartangastöðvar hófust vorið 1997 og komust á fullt skrið vorið 1998. Fyrri vél Sultartangastöðvar var gangsett seint á árinu 1999 og var stöðin komin í fullan rekstur snemma árs 2000.

Á árunum 1982 til 1984, löngu áður en bygging stöðvarinnar hófst, höfðu Þjórsá og Tungnaá verið stíflaðar austan undir Sandafelli um það bil 1 km ofan ármótanna. Frá rótum Sandafells liggur stíflan yfir farveg Þjórsár, austur yfir Sultartanga og farveg Tungnaár og áfram á suðurbakka hennar í átt að Haldi við Tungnaá. Með gerð stíflunnar myndaðist ofan hennar svonefnt Sultartangalón, og þaðan hefur vatni verið veitt um farveg Þjórsár til Búrfellsstöðvar.

Sultartangastífla er 6,1 km löng, sú lengsta á Íslandi. Samhliða byggingu Sultartangastöðvar var stíflan hækkuð um 1 metra og við það óx lónið úr 18 km2 í 20 km2. Við vesturenda stíflunnar í bakka Þjórsár er botnrásarskurður með lokuvirki.

Framkvæmdir við SultartangavirkjunVestur úr botnrásarskurðinum ofan lokuvirkisins liggur stuttur aðrennslisskurður að inntaki en þaðan liggja 3,4 km löng aðrennslisgöng að stöðinni. Aðrennslisgöngin liggja til suð-vesturs í gegnum Sandafell að jöfnunarþró suðvestan í fellinu en jarðvegsstíflur eru með þrónni á þrjá vegu.

Við enda þróarinnar er stöðvarinntak og þaðan liggja stálpípur að stöðvarhúsinu. Aflvélar eru tvær af Francis gerð, hvor um sig 60 MW. Frá stöðvarhúsinu liggja háspennustrengir um 180 m löng jarðgöng að rofahúsi vestan við stöðina. 220 kV háspennulína frá Hrauneyjafossi að Brennimel var tengd inn í rofahúsið en hún hafði verið í notkun frá því að Hrauneyjafossstöð fór í rekstur. Að auki var lögð ný 400 kV lína frá rofahúsinu að Búrfellsstöð.

Frárennslisskurður liggur frá stöðvarhúsinu í rótum Sandafells, um Álftafell og niður á Hafið. Skurðurinn sveigir í stefnu meðfram farvegi Þjórsár og fylgir honum að stað 800 m ofan við veitustíflu Búrfellsvirkjunar þar sem hann liggur út í farveg árinnar. Skurðurinn er rúmlega 7,2 km langur.

Í heimildarmyndinni "Nú er rafmagn hingað sótt" er fylgst með byggingu Sultartangastöðvar. Myndin var sýnd í Sjónvarpinu í maí árið 2001. Þar er fléttuð saman sagan á bak við framkvæmdirnar og hversdagslíf þeirra sem störfuðu við byggingu stöðvarinnar.

Horfa á myndina >>


Útlit síðu: