Vatnsfellsstöð

Listaverk við Vatnsfellsstöð

Árið 2005 voru listaverkin Tíðni eftir Finnboga Pétursson og Móðir jörð eftir Gjörningaklúbbinn vígð. Verkið Tíðni stendur á hæð gegnt stöðinni, þar sem áður stóðu vinnubúðir Landsvirkjunar. Verkinu Móðir jörð var komið fyrir á landspildu fyrir framan tengivirki Vatsfellsstöðvar.

Listaverkið Tíðni

Tíðni er manngeng hljóðpípa sem gefur hljóð á 50 riðum, en það er sama tíðni rafmagnsins sem kemur frá stöðinni. Í verkinu Tíðni sjáum við sjálfar höfuðskepnurnar að leik. Hér er unnið með vatnið, jörðina, loftið og eldinn svo úr verður samtal milli tóns og rafstraums; tveggja af ósýnilegu börnum náttúrunnar. Þegar norðanvindurin blæs og leikur um hljóðpípuna myndast djúpur tónn sem á máli vísindanna hefur sveiflutíðnina 50 rið. Á sama augnabliki flæðir vatnið um virkjunina svo úr verður rafstraumur. Og þá verður samtalið einmitt til - því sveiflutíðni hans er einnig 50 rið. Undrið gerist: Hjörtu tóns og rafstraums slá í sama takti.

Listaverkið Móðir Jörð

Verkið Móðir jörð eftir gjörningaklúbbinn er gróðurreitur sem hefur verið útbúinn við Vatnsfellsstöð. Gjörningaklúbbinn skipa þær Eirún Sigurðardóttir, Jóní Jónsdóttir og Sigrún Hrólfsdóttir. Móðir Jörð tekur þátt í ævintýrum tæknivæðingarinnar, jafnt með skapandi sem eyðandi mætti sínum. Hún hýsir ljósleiðara og rafmagnsstaura jafnt sem menn og lífríki. En hún getur fyrirvaralaust slitið sambandinu með krafti sínum. Það er til lítils að rökræða við náttúruna.

Í október 2003 voru gróðutorfur úr Þóristungum, sem eru á svæði fyrirhugaðs Sporðöldulóns, fluttar á hinn gróðursnauða tanga við Vatnsfellsstöð í samvinnu við Landgræðslu ríkisins. Virkjunin sér gróðurreitnum fyrir skjóli auk rafmagns sem lýsir upp útlínur hans þegar skyggja fer. Þegar við notum rafmagn þrýstum við á „play“ takkann á móður jörð án þess að velta endilega fyrir okkur samhengi hlutanna.

 


Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica