Fyrirkomulag virkjunarinnar
Í tengslum við Vatnsfellsvirkjun voru reistar þrjár stíflur. Ein aðalstífla nær yfir núverandi veitufarveg en að auki voru reistar tvær minni hliðarstíflur. Aðalstíflan er hæst 30 m og um 750 m löng. Krónuhæð hennar er í 565,5 m y.s. Hliðarstíflurnar eru suðaustan við aðalstífluna. Sú hærri er 10 m há og 300 m löng en sú minni um 4 m há og 80 m löng. Stíflurnar eru grjótstíflur en aðalstíflan er með steyptri klæðningu vatnsmegin.
Ofan við stífluna er lítið inntakslón, um 0,6 km2 að stærð, í hæstu vatnsstöðu og með miðlanlegt rými upp á 3,2 Gl. Við suðurenda aðalstíflunnar er 700 m langur aðrennslisskurður að steyptu inntaksvirki. Frá inntaki er vatninu veitt í tveimur 126 m löngum þrýstipípum úr stáli að stöðvarhúsi.
Í stöðvarhúsinu eru tvær aflvélar af Francis gerð hvor um sig 45 MW. Stöðvarhúsið er ofanjarðar en grafið niður og inn í brekkurótina. Frá stöðvarhúsinu liggja háspennustrengir um stokk neðanjarðar að rofa- og tengivirkishúsi norðan við stöðina. Í því er SF6 gaseinangraður rofabúnaður en frá húsinu er 220 KV flutningslína að tengivirkinu við Sigöldustöð.
Frá stöðvarhúsi að Krókslóni var grafinn 2,4 km langur frárennslisskurður. Aðkomuvegur að stöðvarhúsi var lagður suðaustan við hann.
