Dótturfélög og tengd fyrirtæki

 

Dótturfélög

Landsnet
Landsnet hf. var stofnað á grundvelli raforkulaga sem samþykkt voru á Alþingi á vormánuðum 2005. Hlutverk fyrirtækisins er að annast flutning raforku og stjórnun raforkukerfisins.  Landsnet starfar samkvæmt sérleyfi og er háð eftirliti Orkustofnunar sem ákvarðar tekjurammann sem gjaldskrá fyrirtækisins miðast við.  Landsvirkjun á um 64,7% hlut í fyrirtækinu en önnur orkufyrirtæki eiga afganginn.
Landsvirkjun Power Landsvirkjun Power hóf starfsemi sína í byrjun árs 2008. Fyrirtækið vinnur að verkefnum í orkumálum á alþjóðavettvangi með beinni þátttöku í verkefnum í öðrum löndum. Landsvirkjun Power er að fullu í eigu Landsvirkjunar.
Orkufjarskipti
Fyrirtækið rekur öflugt fjarskiptakerfi sem mætir kröfum raforkukerfisins um áreiðanlegt og traust fjarskiptanet. Orkufjarskipti eru í jafnri eigu Landsvirkjunar og Landsnets.Félagið býður ekki upp á almenna fjarskiptaþjónustu.
Hraunaveita ehf.
Fyrirtækið tók við tilteknum verkefnum vegna Kárahnjúkavirkjunar en stundar ekki neina starfsemi nú. Félagið er í fullri eign Landsvirkjunar.
Þeistareykir Þeistareykir ehf. voru stofnaðir í apríl 1999. Hlutverk fyrirtækisins er að stunda orkurannsóknir á Þeistareykjum og undirbúa orkuvinnslu þar. Landsvirkjun á 96,7% hlut í fyrirtækinu.
Icelandic Power Insurance Tilgangur Icelandic Power Insurance er að annast um tryggingar og endurtryggingar á aflstöðvum Landsvirkjunar auk þess að hafa umsjón með framkvæmdatryggingum á verktíma.

 

Tengd fyrirtæki

Baðfélag Mývatnssveitar hf.
 Landsvirkjun fer með 14,88% hlut af virku hlutafé í baðfélaginu í árslok 2010.
Netorka hf.
Netorka hf. er sameiginlegt mæligagna- og uppgjörsfyrirtæki sem þjónar íslenskum raforkumarkaði. Netorka annast uppgjör og vinnslu sölumælinga. Landsvirkjun fer með 3,5% hlut í félaginu.
Farice hf
Farice hf var stofnað í september 2002 og rekur sæstrengina FARICE og Danice. Landsvirkjun fer með 26,7% hlut í félaginu.
Íslensk orka ehf
Fyrirtækið stundar starfsemi sem tengist orkuöflun og nýtingu hennar. Landsvirkjun fer með 27,1% hlut í félaginu.
Neyðarlínan ohf.
Neyðarlínan sér um rekstur neyðarnúmersins 112. Neyðarlínan sér einnig um rekstur Vaktstöðvar siglinga og fjarskiptastöðvarinnar í Gufunesi. Neyðarlínan á og rekur fjarskiptafyrirtækið Tetra Ísland. Landsvirkjun fer með 8% hlut í félaginu.
DMM lausnir DMM lausnir ehf. er hugbúnaðar- og ráðgjafarfyrirtæki sem sérhæfir sig í framleiðslu upplýsingakerfanna DMM og Inspector.is og ráðgjöf í tengslum við notkun kerfanna. Landsvirkjun fer með 15,9% hlut í félaginu.
Vistorka Vistorka er samvinnuvettvangur orkufyrirtækja og rannsóknastofnana sem standa að Íslenskri NýOrku. Leiðarljós Íslenskrar NýOrku er að standa fyrir verkefnum til að prófa nýja vetnistækni og stuðla að notkun vetnis í íslensku samfélagi. Landsvirkjun fer með 12,01% hlut í félaginu.

Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica