Laus störf
Landsvirkjun er eitt stærsta fyrirtæki landsins með efnahagsreikning upp á 4,8 milljarða dollara. Fyrirtækið starfar í alþjóðlegu umhverfi og helstu viðskiptavinir þess eru alþjóðleg fyrirtæki.
Breytingar á alþjóðlegum raforkumörkuðum skapa fyrirtækinu ný sóknarfæri. Framundan eru spennandi tímar í rekstri félagsins þar sem aukin áhersla er lögð á rekstur, markaðsmál og bætta arðsemi samhliða áframhaldandi uppbyggingu raforkuvinnslu.
Hjá Landsvirkjun og dótturfélögum starfa rúmlega 300 manns með fjölbreytta menntun. Áhersla er lögð á jafnrétti og tækifæri til starfsþróunar.


